
Jæja þá kom að því að eldaður væri kjúklingur. Við Birgitta fengum gesti í kvöld. Helgu systur Birgittu ásamt Freyju og Birgittu litlu ( jamm það er önnur Birgitta ). Við svo hátíðlegt tilefni gleymum við öllu grænmetisætu hippa tali og höfum yfirleitt fisk eða kjúkling. Held að það sé óhætt að segja að aldrei sé rautt kjöt vegna þess að ég hef bara ekki hugmynd hvernig á að eldað það. Hver veit samt á næstunni ætla ég að gera tilraun til að elda spendýr ( enda karlmenni … KARLMENNI!!! sem borðar kjöt ).
Í kvöld vorum við fjögur ásamt barni. Uppskriftin nægði fyrir okkur fjögur og rúmlega það. Reyndar eru bæði Helga og Birgitta miklar sósu konur og því gerði ég gríðarlegt magn af sósu og það var eitthvað eftir. Sjáum til á morgun hvað ég geri við þá afganga.
Þess má geta að Birgitta kláraði Kúskúsið áður en ég náði að taka myndina. Tóma plássið á disknum er því fyrir kúskús. Ég notaði bara pakka kúskús í kvöld og því fylgir ekki uppskrift af því. En fljótlega hendi ég inn einhverjum kúskús rétt.
Skemmtileg staðreynd: Kúskús kemur fjórum sinnum fyrir í þriðju málsgrein þessarar færslu.
Innihald: Kjúklingalundir
1 kg. Kjúklingalundir ( Þarf varla að segja þetta en að vanda er sveigjanleikinn í fyrirrúmi á þessu bloggi. Notið bara kjúkling hvaða part sem er eða þess vegna fisk ).
Ólífuolía til að þekja yfir kjúklinginn
Eðal-Kjúklingakrydd frá Pottagöldrum ( Sítrónupipar er líka brill! )
Aðferð:
Hreinsið og skolið kjúklinginn ( þið sem nennið því, geri það eiginlega aldrei nema í kvöld ). Kjúklingurinn er svo settur í lokað ílát og kryddaður nokkuð vel og ólífuolíu hellt útá til að þekja kjötið. Smá innskot, þetta er reyndar líka góð aðferð til að lengja líftíma á hráu kjöti um nokkra daga, þ.e. að marinera það.
Lokið boxinu og skellið í ísskápinn. Það er auðvitað best að gera þetta daginn áður en auðvitað gleymdi ég því og gerði þetta því ekki nema klukkutíma fyrr. Það er allt í lagi en kjötið tekur betur bragð ef það fær meiri tíma.
Setjið pönnuna á lágan hita og skellið öllu heila klabbinu á pönnuna ( olíu og kryddi ). Þegar kjúklingurinn er svo tilbúinn þá er honum bara hent í skál og eitthvað yfir. Því næst er það sósan.
Innihald: Hnetukarrísósa með sveppum
200 g. Sveppir
100 g. Hnetur (Kashjú hnetur eru brilliant en annars bara hvaða hnetur sem er … )
160 – 250 ml Kókosrjómi ( á ég að segja það … eða rjómi )
1 kúfull matskeið af hnetusmjöri
Kraftur
Grófur Pipar og Karrí
Aðferð:
Skerið sveppina í bita. Ég skar þá í sneiðar og svo í tvennt. Setjið hneturnar í skál ásamt vatni sem hylur þær. Gott ef hneturnar eru í bleiti í smá tíma. Skellið sveppunum á pönnuna ( Já! Sýnið þeim hver ræður ). Sveppirnir fá þá að brúnast aðeins áður en hnetunum er hennt á pönnuna með vatninu.
Þegar þetta er farið að krauma er karríinu bætt útí eftir smekk ásamt pipar. Þegar vökvinn hefur svo gufað upp er kókosrjómanum bætt útí ásamt hnetusmjörinu. Gott að hræra svolitið vel í þessu öllu svo hnetusmjörið bráðni og blandist vel.
Smakkið … geðveikt ekki satt? Svo er það bara loka fínisering. Ef súpan er ekki nógu bragðmikil er kraft bætt útí og meira karrí ef ykkur finnst það vanta.
Þá er hún tilbúin alveg geðveik Hnetukarrísósa með sveppum!
Í kvöld gerði ég líka sætarkartöflur með basil. Það hefði verið best að eiga ferskan basil en úrvalið í búðinni var svo skítlélegt að það hvarflaði ekki að mér að borga 400 kall fyrir “ferskan” basil sem klárlega átti að vera kominn á helmings afslátt. En þær eru einfaldar að gera fyrir þá sem vilja.
Innihald: Sætar kartöflur með basil.
1 stk. Sæt karftafla
gott búnt af ferskum basil ( eða þurrkaður basill eftir smekk )
Olífuolía
Aðferð:
Saxið basilinn í smátt. Næst er sæta kartaflan afhýdd og skorin i teninga eða franskar ( franskar í kvöld ). Ég lagði þær í skál og skvetti olíu og basil yfir klukkutíma áður en ég eldaði þetta. En það skiptir ekki öllu.
Því næst er öllu skellt á pönnu og steikt í u.þ.b. 3 – 4 mín. áður en glasi af vatni er bætt útí og þessu leyft að malla þar til vökvinn hefur gufað upp.
Ég smakkaði einu sinni appelsínu og sætar kartöflur mús, helv … gott þarf bara að finna út hvernig það var gert og kannski seinna í vetur verður þannig með mat.
Með þessu var svo salad sem er orðið daglegt á þessu heimili. Verði ykkur að góðu og heyrumst á morgun með uppskrift sem verður byggð á afgöngum af sósunni. Veit ekki enn alveg hvað en sjáum til.