
Ég eldaði frekar seint í kvöld, ég er búinn að vera að vinna mjög mikið og sofa lítið þannig að ég lagði mig seinni partinn og vaknaði ekki fyrr en á miðnætti. Glorhungraður en ekkert í sérstöku stuði til að fá mér mikla og þunga máltíð.
Ég ákvað að gera ofnbakað grænmeti, með basil, steinselju og hvítlauk.
Með þessu gerði ég svo sósu en hún er ekki nauðsynleg.
Þetta ætti að vera nóg fyrir tvo.
Innihald:
1 stk. lítil sæt kartafla
2 stk. stórar gulrætur
200 g. Sveppir
4 Hvítlauksrif
Ólífuolía
Ferskur Basil og Steinselja eftir smekk
Grófur Pipar
Aðferð:
Skerið sætu kartöfluna í litla kubba ( sentimeter að stærð ). Sveppirnir eru skornir í fernt og svo gulræturnar í bitastærð eftir því smekk. Ég star gulræturnar í stóra bita því mér finnst ágætt að þær séu ekki alveg linar. Allt er þetta sett í eldfast mót með heilum hvítlauksrifum.
Hellið vel af Ólífuolíu yfir þetta allt og bætið fínsöxuðum basil og steinselju, hrærið vel saman. Piprið aðeins eftir smekk.
Setjið í ofn á 150g í ca. 40 mín, en athugið hvort sætu kartöflurnar séu orðnar mjúkar. Ef ekki leyfið þá að vera aðeins lengur.
Innihald: Sósa
1 stk. Laukur
50 g Hnetur
Ferskar kryddjurtir af eigin vali
1/2 Dós af Kókosmjólk ( 300 ml mjólk eða rjóma )
Teskeið Grænmetiskraft
Ólífuolía
Aðferð:
Saxið kryddjurtirnar og skerið laukinn í tvennt og svo í sneiðar. Allt er þetta sett í pottinn með hnetunum og steikt örlítið á lágum hita.
Næst er kókosrjómanum bætt við og örlítið af kraft. Þetta fær að malla aðeins þar til sósan hefur tekið bragð.
