Hrísgrjóna Pilaf


Það er eflaust einhver hræsni af minni hálfu að vera með uppskriftablogg, því ekkert er að mínu mati leiðinlegra en að elda eftir uppskrift.

Auðvitað er það svo að þær eru góður grunnur og gott að hafa til stuðnings, sumir eru þó svo hræddir við að breyta. Ég vona þó að fólk sjái það á uppskriftunum að það má alveg breyta ( þess vegna alltaf þessir svigar ).

En ég á nokkrar uppskriftabækur sem ég les og hugsa mikið um. Guðmunda mamma Birgittu gaf mér bók sem heitir Matreiðslubók úr jurtaréttum. Í henni eru nokkrar uppskriftir og í dag ákvað ég að prófa eina. Hún er hér aðeins breytt þó.

Innihald:
2 Bollar af vatni
2 Tsk kraftur ( eða eftir smekk )
Bolli af hrísgrjónum lögð í bleyti
Fínt brytjaður laukur
1 stk Paprika ( græn eða rauð ).
1 Bolli soyjahakk ( hugsa að venjulegt hakk sé fínt líka en þá piprað aðeins til að minka fitubragðið )
1/2 bolli af brytjuðum möndlum
Slatti af ferskum eða þurrkuðum Basil

Aðferð:
Látið hrísgrjónin liggja yfir nótt í bleyti. Soyjakjötið er líka gott að hafa lagt í bleyti áður. Saxið laukinn og paprikuna fínt ásamt basil ef þú ert með ferskar kryddjurtir.

Eldfast mót er smurt með vænni slettu af olíu og öllu er þessu blandað saman áður en sett er í ofn á 150C – 200C þar til hrísgrjónin eru alveg soðin.

Þetta bar ég fram með einhverri sósu sem mér þykir góð.

Rita ummæli

Filed under Uncategorized

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s