InDefence kássa úr Íslensku rótargrænmeti, framreidd með rembing og lýðskrum


Icesave er heitasta málefnið þessa dagana. Ólafur Ragnar hefur boðað til blaðamannafundar í fyrramálið þar sem hann ætlar að greina frá ákvörðun sinni. Ég ákvað í tilefni þess að gera kássu sem er svo stútfull af þjóðarembingi að hægt er að fá nánast allt í hana án innflutnings. Kássuna skýri ég í höfuð InDefence.

Kássan er ódýr að vanda og þægileg ef ekki er stemming fyrir mikilli máltíð. Gott að venja sig á nægjusemi sem fyrst ef af verður að forseti skrifar ekki undir Skítsæmileg er í raun besta orðið til að lýsa henni.

Uppskriftin er fyrir einn.

Innihald:
1 stk. Laukur
3 stk. Gulrætur
150 g. Hvítkál eða rósakál
1 bolli Mjólk, Rjómi eða Kókosmjólk
1 bolli vatn
Grænmetiskraftur
Grófur pipar og Chillipipar
Ég nota ólífuolíu
en hvers vegna ekki að tapa sér og nota bara innlendan tólg!

Aðferð:
Laukurinn, gulræturnar og hvítkálið/rósakálið er allt skorið í bita eftir smekk. Því næst er laukurinn brúnaður aðeins við lágan hita áður en afganginum er bætt við ásamt bolla af vatni og kraft.

Næst er rétturinn kryddaður til og kókosrjómanum bætt við. Þessu er svo leyft að malla á meðan lagt er á borð. Í stíl við látlausan rétt tók ég myndina af mat kvöldsins á vinnuborðinu hjá mér, allt í drasli nóg að hneykslast fyrir þá sem það vilja.

Rita ummæli

Filed under Uncategorized

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s