Pizza með hvítlauk og spínat


Systir hennar Birgittu borðaði með okkur í kvöld. Þegar við Birgitta bjuggum úti áttum við það til að kaupa pizzu með spínat og hvítlauk. Það er varla hægt að segja að við söknum mikið af mat frá Bretlandi, þó eru nokkrir veitingastaðir sem maður saknar að fara og borða á. Fæstir þeirra eru reyndar Breskir, við bjuggum svo vel að búa í innflytjendahverfi þar sem hægt var að fá mat frá öllum heimsálfum. Hefðbundið Breskt mataræði var því aldrei til staðar hjá okkur.

Við ákváðum í kvöld að gera tilraun til að elda þessa pizzu sem við keyptum svo oft. Hún tókst nokkuð vel en var þó ekki alveg eins. Það kemur bara í næstu tilraun.

Við keyptum tilbúið pizzudeig þótt einfalt sé að gera það sjálfur. Við eigum ekki til kökukefli þannig að ég notaði rauðvínsflösku til að fletja deigið vel út. Pizzan er best ef hún er þunn, þetta virkar illa sem einhverskonar hleifur með dóti ofaná, eins og er svo algengt með pizzur á Íslandi.

Þetta myndaðist ekki nógu vel en bragðast ágætlega, ekki láta myndina stoppa það að uppskriftin sé prófuð.

Innihald:
50 g Spínat
2 lauf af hvítlauk
Pipar og örlítið af basil ef er til
Pizzasósa á botninn
Rifinn Ostur
Ég nota ólífuolíu

Aðferð:
Saxið spínatið niður ásamt hvítlauknum og steikið létt á pönnu með pipar og ólífuolíu. verið dugleg að hræra í þessu til að það brenni ekki við. Á meðan er hægt að hnoða botninn og fletja út.

Stillið ofninn á 150C undir og yfir, og leyfið ofninum að hitna. Á meðan er gott að setja sósuna á botninn, því næst er spínat og hvítlauknum dreift jafnt yfir og að lokum rifnum ost, ásamt smá basiliku.

Massa góð pizza.

Rita ummæli

Filed under Uncategorized

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s