Eggjakaka með sveppum og lauk


Ég er alveg skelfilegur í að gera eggjakökur. Fyrst og fremst er það vegna þess að ég er ekki mikill aðdáandi eggja. Mér bara finnst bragðið af eggjum ekki gott og skil ekki fólk sem getur borðað þau í miklu magni.

En egg eru holl í hófi og auk þess mjög ódýr. En í kvöld sá ég í ískápnum eggjabakka sem þurfti að fara að klára og ákvað því að gera eggjaköku.

Innihald:
3 Egg
200g Sveppir
1 Stór laukur eða rauðlaukur
2x lúkufylli af raspi.
Ostur í sneiðum eða rifinn
Helling af pipar til að losna við eggja bragðið, karrí og kryddjurtir að eigin vali.
Ég nota ólífuolíu

Aðferð:
Ég setti bara sveppina og laukinn í matreiðsluvél og saxaði þar en það er líka bara hægt að skera niður. Allt er þetta sett í skál og þremur eggjum blandað við.

Hrærið saman með sleif og bætið við pipar og karrí á meðan. Næst er svo raspi/brauðmylsnu blandað við þangað til þetta er orðið nokkuð þéttur massi. Því næst er þessu skellt á pönnu með smá olíu og leift að steikjast örlítið áður en eggjakökunni er snúið við.

Þá er um að gera að strá smá ost yfir og pipra aftur. Því næst er kakan brotin saman með ostinn í miðjunni og leyft að vera á pönnunni þar til hún er steikt í gegn.

Berið fram með salati eða hrísgrjónum. Ætti að nægja fyrir 2 – 3 með meðlæti.

Rita ummæli

Filed under Uncategorized

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s