Ákvað að láta loksins verða að því að elda eggjanúðlur. Það er alveg ótrúlega auðvelt að gera fínar núðlur, ég svosem veit ekki hvort aðferðin sem ég notaði er „hin eina rétt“ en þetta virkaði. Rétturinn er fyrir 1 – 2.
Innihald:
1 pk Núðlur
1/2 Sæt Kartafla
1 stk. Paprika
1 Egg
Smá Engiferrót
Basil
Pipar
Soyjasósa
Olífuolía
Aðferð:
Ég notaði rifjárn til að saxa niður sætu kartöfluna og paprikuna ( það var þá sem ég áttaði mig á að betra er að fínsaxa paprikuna bara ).
Hitið pönnu með olíu og saxaðri engiferrót á miðlungshita. Bætið núðlunum ásamt bolla af vatni á pönnuna. Þegar núðlurnar eru nokkurn vegin orðnar mjúkar þá skellti ég einu eggi á og hrærði saman við núðlurnar.
Að lokum bætti ég grænmetinu við, skellti soyjasósu, basil og pipar í blönduna. Hrærði öllu með spaðanum og át með bestu lyst.

