Fólk segir oft að það hafi ekki áhuga á pólitík án þess að gera sér grein fyrir því að það sem við borðum hefur meiri áhrif á samfélagið en við gerum okkur í hugarlund.
Að borða hollt þarf ekki að vera mjög dýrt. En það er erfitt í landi ( já ég á við Ísland ) þar sem matarvenjur okkar eru algjörlega fyrir neðan allar hellur. Ég flutti heim ásamt kærustu minni tímabundið og við búum nú á Vestfjörðum. Það verður að segjast að matarvenjum okkar hefur farið gríðarlega aftur síðan við komum til landsins.
Ég var grænmetisæta áður en við komum heim, kærasta mín var það hinsvegar ekki. Eftir að komið var heim byrjaði ég að borða kjöt meir og borðaði í raun rautt kjöt í fyrsta skipti í mörg ár.
Ég elda ekki mikið úr kjöti, mest er þetta grænmetisréttir með fisk og kjötréttum inn á milli núna. Umfram allt reyni ég að halda matnum ódýrum og hollum á sama tíma og ég reyni að draga sem mest úr mengun sem verður til vegna óhóflegs lífsstíls okkar.
